Guðmundur K. Einarsson er Eldhugi Kópavogs 2026
Rótarýklúbbur Kópavogs hefur útnefnd Eldhuga Kópavogs 2026. Markmiðið með eldhugavalinu er að útnefna Kópavogsbúa, sem vakið hefur athygli og þykir hafa skarað fram úr í störfum sínum og athöfnum og verið öðrum fyrirmynd. Þetta er í 29. skipti sem Eldhugi Kópavogs er útnefndur en alls hafa 30 verið
...
Rótarýklúbbur Kópavogs hefur útnefnd Eldhuga Kópavogs 2026. Markmiðið með eldhugavalinu er að útnefna Kópavogsbúa, sem vakið hefur athygli og þykir hafa skarað fram úr í störfum sínum og athöfnum og verið öðrum fyrirmynd. Þetta er í 29. skipti sem Eldhugi Kópavogs er útnefndur en alls hafa 30 verið útnefndir.Guðmundur K. Einarsson er Eldhugi Kópavogs 2026 Í ár varð Guðmundur K. Einarsson, félagi í Hjálparsveit skáta í Kópavogi, fyrir valinu. Guðmundur K Einarsson fæddist í Darmstadt í Þýskalandi árið 1959, þar sem faðir hans var við nám í vélaverkfræði. Guðmundur á ættir að rekja m.a. til Siglufjarðar og Vestmannaeyja. Guðmundur fluttist í Kópavoginn 6 ára gamall og hefur búið hér alla tíð síðan. Hann lauk hefðbundinni skólagöngu í Kópavogi og starfsferill hans hefur að mestu verið í Álverinu í Straumsvík. Guðmundur gerðist ungur að árum skáti í Skátafélaginu Kópum. En nokkur þáttaskil urðu í lífi hans, þegar hann gekk til liðs við Hjálparsveit skáta í Kópavogi árið 1978. Má segja að þar hafi hann fundið fjölina sína. Hefur hann starfað í sveitinni óslitið síðan þá og lagt mikið af mörkum. Hann var til dæmis í stjórn sveitarinnar í ein 16 ár og tæplega helming þess tíma var hann gjaldkeri. Guðmundur er einn reynslumesti sjálfboðaliði innan Hjálparsveitar skáta í Kópavogi með áratuga reynslu af neyðar- og leitarstarfi. Hefur hann hlotið vottanir í fyrstu hjálp og sjúkraflutningum, leiðtogamenntun innan skátahreyfingarinnar auk sérhæfðrar þjálfunar í leit og björgun í fjöllum og óaðgengilegu landslagi. Einnig hefur hann reynslu af samstarfi við slökkvilið, lögreglu og almannavarnir við viðbragðsáætlanir og neyðarviðbrögð. Þá hefur Guðmundur tekið virkan þáttí viðburðum og fjáröflun til að styðja starf sveitarinnar og ber þar hæst flugeldasalan. En þar er framlag hans með ólíkindum. Ósjaldan hefur hann tekið sér frí frá vinnu til að sinna þessari mikilvægustu fjáröflun sveitarinnar.Tilnefndur af jafningjum Við val á Eldhuga Kópavogs undanfarin ár hefur athyglin yfirleitt beinst að einstaklingum sem hafa sem slíkir vakið athygli fyrir störf sín. Að þessu sinni var það Hjálparsveit skáta í Kópavogi sem hafði vakið athygli Viðurkenningarnefndar Rótarýklúbbs Kópavogs og spurning vaknaði hvort einhver einstaklingur innan sveitarinnar kæmi til greina sem Eldhugi Kópavogs. „Fyrirfram vorum við nokkuð efins um að einhugur gæti verið innan hjálparsveitarinnar um að taka einhvern einn félaga út úr og veita honum slíka viðurkenningu. Það kom okkur því mjög ánægjulega á óvart að allir þeir sem var leitað álits hjá voru einhuga um að Guðmundur K Einarsson væri nánast sjálfkjörinn af hálfu hjálparsveitarinna til að hljóta þessa viðurkenningu,“ segir Guðmundur Jens Þorvarðarson, formaður viðurkenningarnefndar. Páll Árni Jónsson, forseti Rótarýklúbbs Kópavogs afhenti Guðmundi viðurkenningu Eldhuga Kópavogs árið 2026.Eldhugar Kópavogs frá upphafi 1997 Jónas Ingimundarson1998 Þórunn Björnsdóttir1999 Guðmundur H Jónsson2000 Ævar Jóhannesson2001 Þorsteinn Einarsson2002 Gylfi Gröndal2003 Ásdís Skúladóttir2004 Þorvaldur Jacob Sigmarsson2005 Ásgeir Jóhannesson2006 Sigríður Einarsdóttir2006 Sólveig Jónasdóttir2007 Anna Bjarnadóttir2008 Marteinn Sigurgeirsson2009 Páll Theódórsson2010 Össur Geirsson2011 Þorbjörn Jensson2012 Magnús Jakobsson2013 Margrét Bjarnadóttir2014 Guðbjörg Kristjánsdóttir2015 Vilmundur Guðnason2016 Þórður Guðmundsson2017 Hallfríður Ólafsdóttir2018 Þórður Árnason2019 Helgi Ólafsson2020 Magnús Gíslason2022 Helga Guðrún Gunnarsdóttir2023 Bjarki Sveinbjörnsson2024 Sigurður Reynir Gíslason2025 Árni Harðarson2026 Guðmundur K. Einarsson